miðvikudagur, mars 26, 2008

Nýtt blogg

Ég er komin með nett leið á þessu hérna. Svo ég hef öðlast nýtt líf á nýjum stað. Sendið mér mail....

{hérna!}

sunnudagur, febrúar 03, 2008

NÝTT LÍF



Fallega fallega fallega blaðið okkar er komið út! Stærsta tískutímaritið og í raun það eina, á Íslandi! Gullfallegur portrait myndaþáttur eftir Veru Pálsdóttur og endalaust af skemmtilegu efni.....Ég er montin af þessu blaði, það er æði. Ég er í besta starfi í heimi!

fimmtudagur, desember 27, 2007

Gleðileg jól!





Jólakveðja frá íbúum L38b

föstudagur, desember 14, 2007

Hangikjötsveisla í jólahúsinu

Skata er ógeðsleg. Það er staðreynd. Undanfarin ár hef ég skorið upp herör gegn þessari viðbjóðslegu hefð og held mitt eigið þorláksmessupartí, með hangikjöti, uppstúf, laufabrauði og grænum baunum. Það verður opið hús á Þorláksmessu og þar verður engin skata!

þriðjudagur, desember 11, 2007

Á sama tíma í fyrra

Þegar kaldir vindar blása er gott að rifja upp hlýjar stundir sem þessar. Ég sakna Thailands.

laugardagur, desember 08, 2007

Nýtt gigg

Markaðsfólkið hjá MGM sá fram á mikla samkeppni þegar ég póstaði mynd af Baltasar Kormák á vefnum fyrir stuttu. Því brugðust þeir fljótt við, fram fór fjandsamleg yfirtaka og hér er árangurinn.

sunnudagur, nóvember 18, 2007

BrynjuJól hefjast

Ég er byrjuð að skreyta! Ég fór í fjórar búðir og keypti jólaskraut í þeim öllum. Þegar ég verð þrítug mun ég eiga nægt jólaskraut til að skreyta jólatréð í Rockefeller Center.



Víjj ég hlakka svo til. Ég er krakki ég veit. En BrynjuJól eru best eins og allir vita.